|
|
16.12.2010 17:21:57 / ellyg
Jæja þá ætlar maður að reyna að endurvekja þessa síðu hef svosem ekki mikið að segja núna,það er yfirleitt alltaf það sama að gerast hjá manni,maður vinnur borðar og sefur og reynir að hafa það gott inná milli.Áslaug kemur alltaf reglulega til okkar pabba síns,hún var hjá okkur t.d. í 1 mánuð í sumar og var það bara gaman.þetta er búið að vera ágætis ár,núna bíður maður bara eftir jólunum og áramótunu en jæja læt þetta duga í bili. Kveðja Elly Sprelly
»
24.07.2008 17:12:19 / ellyg
Já við erum komin heim frá Krít,komum til landsins 2.Júlí.Fórum í verslunar ferðir,fórum 3 sinnum á sröndina,vorum oft á sundlaugarbarnum á hótelinu,svo við höfðum það bara gott úti.Síðan að við komum heim ér búið að vera ágætlega mikið að gera,stelpan er búin að vera aðeins hjá okkur,höfum farið 2 sinnum á íllugastaði og farið í tjaldferðarlag í eina nótt með stelpuna,svo fór ég í skoðun upp á sjúkrahús 17.Júlí og fékk grænt ljós á að fara í sjúkraþjálfun svo ég er byrjuð í Eflingu.Enn má ekki byrja að vinna alveg strax,svo ég hef þurft að stúsast aðeins út af því,svo ég fái einhvern pening þangað til ég byrja að vinna aftur.Svo þið sjáið það að það er búið að vera fullt að gera hjá mér og svo er margt frammundan í næsta mánuði svo ég er bara í stuttu fríi núna:þ Kveðja Ellý Sprelly
»
16.06.2008 09:18:26 / ellyg
Jæja já þá erum við Egill að skella okkur til Krítar í tvær vikur förum á miðvikudaginn 18.Júni erum að fara í brúðkaupsferðina okkar:þáttum eftir að fara í eina slíka eftir brúðkaupið,enn við semsagt giftum okku í fyrra á amælisdæginn minn svo við áttum eins árs brúðkaupsafmæli 16.Maí síðaslæginn svo við heyrumt aftur í Júli Kveðja Ellý Sprellý utanlandsfari
»
16.05.2008 13:57:25 / ellyg
Já ég á víst afmæli í dag og er orðinn 23 ára gömul,maður sleppur víst ekki við að eldast Byrjaði ég daginn á að fara upp á sjúkrahús í skoðun á handleggnum og gengur þetta bara mjög vel segir hann Ari læknir,beinið grær vel og skurðurinn á hendinni er fínn segir hann,enn mér fynst mjög erfitt að hreyfa puttana þegar ég er ekki með stuðning við hendina eins og gifsið og ég get nánast ekkert hreyft únliðinn.Þarf að vera með gifs í allavegana mánuð í viðbót eða til 12 Júní,þá fer ég í næstu skoðun og þá kemur í ljós hvort ég þurfi að vera með gifs lengur eða losna alveg við það,hlakkar rosalega mikið til:þSvo fórum við Egill í vís því Egill þurfti aðeins að tala við þau þar,svo bauð hann mér á Greifann í hádeginu og svo röltuðum við aðeins í bæinn áður enn við fórum heim,svo við erum bara heima og reyna að ákveða hvað við eigum að gera restina af deginum Jæja nóg af tuði í bili kveðja Ellý Sprellý afmælisbarn og súklingur
»
10.04.2008 09:34:00 / ellyg
Já eins og fyrirsögnin gefur til kynna að þá lenti ég í bílveltu-slysi,slysið átti sér stað seinasta Föstudag 4.Apríl,í Öxnadalnum.Vorum við 8 í 14 manna bíl,og sluppu allir mjög vel enn ég lennti verst í þessu öllu saman enn mjög vel miðaðvið að hafa flogið út úr bílnum.Vorum semsagt 3 sem vorum ekki í belti og héldust hinn 2 inni í bílnum af einhverjum ástæðum.Ég semsagt handlegsbrotnaði rétt hjá úliðnum á hægrihönd og hlaut ljótan skurð á svipuðum stað á handleggnum,svo ég verð með stórt og ljót ör þar.Og verð ég að dúsa með gifs allavegana framm í miðjan Maí,svo fékk ég skrámur á andliti og einn skurð sem varð að sauma svo ég fæ líka ör á andliti,svo fékk ég smá skrámur aftann á lærinnog svo 2 stóra marbletti til viðbótar 1 á sitthvorrum upphandlegg.Allir hinir sluppu með smá skrámur og marbletti og fengu að fara heim samdægurs eftir læknisskoðun og þar á meðal maðurinn minn,enn ég var sett í aðgerð stuttu eftir komuna á spítalan út af handlegnum og það var saumað í leðinni skurðurinn í andlitinu og svo var ég send uppá bæklunardeild og var ég þar framm á sunnudag,þá var ég send heim og fékk að sofa heima enn þurfti að fara uppá spítala með nokkra tíma milli bili til að fá sýklalyf í æð framm á þriðjudagsmorgun.enn þá fékk ég logsins bara sýklalýf í föstuformi sem ég þarf að taka framm á sunnudagsmorgun.Svo ég er alveg komin heim af spítalanu,enn þarf að fara í skoðun út af handleggnum Þriðjudaginn 22. Apríl,og þá verða líklega heftin tekin úr honum enn ég þarf svo að fá nýtt gifs sem ég þarf semsagt að hafa lengur.Saumarnir í andlitinu voru tekknir úr í gær,svo ég er laus við þá enn ég þarf að hafa heftiplástur yfir í allavegana viku á eftir. Við Egill maðurinn minn vorum semsagt að fara suður til þess að fara að keppa með liðinu okkar í Boccia og frjálsum ásamt fullt af öðrum liðum víðsvegar af landinu yfir alla helgina,enn við komumst ekki lengra enn í Öxnadalin.Enn það voru nokkrir úr liðinu okkar sem voru komin suður,sem fóru daginn áður eða einhverju áður með flugi sem að kepptu á mótinu,svo við höfðum nokkra fulltrúa fyrir okkar lið á mótinu.Svo það varð ekkert úr þessu móti hjá manni enn við förum á næsta mót sem verður hérna á Akureyri fyrstu helgina í Maí. Jæja læt þetta duga í bili heyrymst seinna kveðja Ellý Sprellý Slasaða
»
22.01.2008 18:10:29 / ellyg
Já ég ætlaði að vera löngu búin að skrifa hérna inná.Stelpann fékk fult af flottu dóti í jólagjöf,frá mér og pabba sínum fékk hún tvær Dórudúkkur,eina barbídúkku og testell og svo sendum við einn pakka með henni suður og í honum var fimm pör af sokkum,eitt pils,eitt prinsessuhandklæði og svo tvenn nærfatasett.Svo fékk hún aðra barbídúkku,þrjá pónýhesta,málningardót,einn geisladisk,tvær húfur og tvenn pör af vettlingum,fjórar spennur,eina peysu og eitt sett af náttfötum og þar með er það talið.Hún var hjá okkur um seinustu helgi og höfðum við það bara fínt,ég byrjaði að vinnna mánudaginn 7.Janúar eftir jólafrí og er maður bara búin að vera að vinna síðan og reynt að hafa það gott þar inná milli,svo það er ekkert mikið búið að ské hjá okkur svona fyrstu dagana á nýju ári. jæja læt þetta duga í bili kveðja Elly Sprelly
»
02.01.2008 17:13:42 / ellyg
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla Við Egill vorum hjá tengdó á gamlárskvöld,fyrst var borðað yfir sig svo var bara legið á meltunni og haft það gott,síðan var skotið upp einni stórri tertu áður enn tengdamamma fór að vinna,svo var horft á skaupið sem var ágætt og svo var farið að skjóta upp öllum herlegheitunum,vorum með fult af rakettum og dóti.Síðan eftir miðnætti var haldið í partý,Egill og Lalli bróðir hans fóru til Silla frænda þeirra í partý enn ég byrjaði á að fara til Sillu frænku og var þar í smá tíma og svo fór ég til partýið til Silla,síðan var kíkt smá í bæinn og svo heim og þá var klukkan að verða fimm svo það var mikið djamm á nýársnótt Seinni partinn í gær fórum við svo aftur til tengdó í mat og var aftur borðað yfir sig,svo við höfðum það bara gott um áramótinn Svo á morgun kemur litla stelpan mín hún Áslaug Guðrún og verður framm á sunnudag eða mánudag,og það verður gaman að fylgjast með henni opna alla pakkana.Það kvöld sem hún opnar pakkana verða litlu jól hjá okkur,þá ætla ég að baka pizzu og hafa gos með og eitthvað fleira og svo verður gert eitthvað fleira skemmtilegt jæja nóg af fréttum núna,skrifa aftur um helgina eða rétt eftir helgi og leyfi ykkur að fylgjast með hvað stelpan fékk og segi frá hvernig hún verður við að opna þá. Kveðja Elly Sprelly
»
27.12.2007 11:35:41 / ellyg
Hæhæ já þetta líður allt saman.Við Egill fengum fullt af flottum gjöfum,og vil ég bara þakka öllum þeim sem gáfu okkur þær fyrir þessar frábærar gjafir.Í gær átti móðuramma mín afmæli,og í dag á Steini vinur minn afmæli og vil ég óska þeim til hamingju með það.Svo fékk maður tvennar gleði fréttir um jólin með jólakortum,ein vinkona mín og önnur systir mín eru óléttar og eiga þær að eiga í Maí og Júli 2008,þetta eru manneskjur sem ég hitti lítið yfir árið þar sem við eigum allar heima á sitthverjum staðnum,svo var litli bóðir minn og kærastan hans að eignast lítinn prins á Þorláksmessukvöldið kl:23:42 og vil ég líka óska þeim til hamingju.Svo maður þarf að fara að gera sér ferð suður til að líta nýjasta fjölskyldumeðliminn augum,þar sem hann á heima eins og þrjú önnur syskini mín og pabbi líka svo á eitt heima í Vestmannaeyjum,svo maður hittir þau sjaldann.Já ég á fimm systkini fyrir þá sem ekki vissu enn samt er ég líka einka barn. Jæja nó af blaðri núna, kveðja Elly Sprelly
»
24.12.2007 16:45:43 / ellyg
Hóhó ,já þá eru það jólin þau eru að ganga í
garð.Við Egill erum bara búin að hafa það fínt,förum á eftir í
kirkju og svo til frænku minnar þar sem við borðum og tökum upp
einhverja pakka,enn við skiljum samt meiri helminginn eftir heima
af pökkunum sem við ætlum bara að opna í ró og næði.Við verðum 10
saman á eftir að borða saman og opna pakka,ég og Egill svo verða
þar mamma,amma,Gunnar frændi bróðir mömmu,Silla frænka systir
mömmu,Siggi maðurinn hennar Sillu og svo krakkarnir þeirra
Elín,Eiríkur og Steindór svo það verður svaka fjör Svo
kemur Áslaug Guðrún til okkar 3.Janúar.Og þá fær hún að opna
pakka,ég held að hún eigi á milli 10 og 15 pakka hjá okkur,svo það
verður stuð.Við ætlum að halda svona litlu jól þegar hún kemur,hafa
smá gaman. Jæja læt þetta
blaður duga í bili. Jólakveðja Elly
Sprelly Gleðileg
jól
»
29.11.2007 11:40:21 / ellyg
Hæhæ það er svosem ekkert mikið búið að gerast hjá mér seinustu daga,en ég er búin að gera næstum öll jólakortin sem við hjónin sendum,og ég er búin að kaupa allar jólagjafir sem við hjónin og Áslaug Guðrún gefum minni fjölskyldu.Ég á bara eftir að kaupa gjöf handa Agli,hef Áslaugu með mér næst þegar hún kemur til okkar til að hjálpa mér að velja gjöfina.Já fyrst ég nefni Áslaugu þá erum við farin að fá hana reglulega til okkar núna,hún kemur núna aðra hverja helgi og var hjá okkur seinustu helgi og var það mjög gaman að hafa hana.Svo í framtíðinni mun hún koma aðrahverja páska,mánuð yfir sumarið og líklega hver áramót. Læt þetta duga í bili þangað til næst Elly sprelly
»
09.11.2007 13:43:40 / ellyg
»
25.10.2007 19:22:48 / ellyg
»
Síður: 1 2
|
|